Skemmtileg gönguferð fyrir alla fjölskylduna
AF STAÐ á Reykjanesið 3. ferð - Garðstígur – gömul þjóðleið
Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 19. ágúst kl. 11 í boði Sveitarfélagsins Garðs í samvinnu við sjf menningarmiðlun og FERLIR.
Gangan hefst við Hólmsneskirkjugarð í Keflavík og verður gengið í Sveitarfélagið Garð eftir Garðstíg sem er gömul þjóðleið um 6,5 km á milli Keflavíkur og Garðs. Svæðið býr yfir minjum og mögnuðum sögum og fróðleik sem leiðsögumenn Reykjaness munu miðla á leiðinni. Reynt verður að gera gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Áætlað er að gangan taki ca. 3-4 klst. með stoppum. Auðveld leið en gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð. Rútuferð til baka kr. 500.
Gangan er þriðji hluti af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða á tímabilinu frá 6.ágúst – 2. sept. ´07. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhver heppinn fær góð gönguverðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.
Mynd: Gönguferðirnar hafa verið vel sóttar í sumar.