Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Skálmöld í Hljómahöll
Þriðjudagur 27. janúar 2015 kl. 13:11

Skálmöld í Hljómahöll

Hljómsveitin Skálmöld er á leiðinni til Reykjanesbæjar og  heldur útgáfutónleika í Hljómahöll, laugardagskvöldið 28.mars. Sérstaklega skal tekið fram að ekkert aldurstakmark er á tónleikana.

Skálmöld gaf út þriðju hljóðversplötu sína, Með vættum, 31. október síðastliðinn. Platan hefur þegar selst gríðarlega vel og fengið stórkostlega dóma, bæði hér heima sem og erlendis. Strax eftir útgáfu héldu strákarnir utan til tónleikahalds en að því loknu hyggjast þeir fagna meistaraverkinu hér heima með útgáfutónleikum í Hljómahöll þann 28 mars. Ekkert verður til sparað og óhætt að lofa stórkostlegri upplifun enda mæta Skálmaldar-liðar til leiks þéttari en nokkru sinni fyrr eftir langt tónleikaferðalag. Tónleikarnir hefjast kl 21.

Miðasala á tónleikana er hér!

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024