Sjónvarp Víkurfrétta á dagskrá í kvöld
	Sjónvarp Víkurfrétta verður á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Í þættinum förum við á björgunaræfingu í Reykjanesfjallgarðinum með kanadískri þyrlubjörgunarsveit, heimsækjum Lionsmenn sem voru að hreinsa kúttmaga, skoðum gistiheimili í fjósi frá 1920, heyrum óvænt tónlistaratriði á kaffihúsinu Bryggjunni í Grindavík og sjáum hæfileikarík börn með skemmtiatriði á Öskudaginn í Reykjanesbæ. Þá fáum við fréttapakka frá Suðurnesjum.
	
	Þátturinn verður aðgengilegur síðdegis í dag hér á vf.is í háskerpu.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				