Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Sjónvarp: Forseti Íslands heimsótti Stóru-Vogaskóla
  • Sjónvarp: Forseti Íslands heimsótti Stóru-Vogaskóla
Miðvikudagur 15. febrúar 2017 kl. 06:00

Sjónvarp: Forseti Íslands heimsótti Stóru-Vogaskóla

Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, heimsótti skólaþing Stóru-Vogaskóla á dögunum. Viðfangsefni skólaþingsins var metnaður og hvernig hægt er að efla metnað nemenda.

Í ávarpi sínu til nemenda í 6. til 10. bekk sagði forsetinn frá því að þegar hann var ungur hafi hann verið einstaklega feiminn. Eitt sinn ætlaði hann að gera tilraun til að vinna bug á feimninni og mætti á fund hjá málfundafélagi Menntaskólans í Reykjavík og tók strætó frá Garðabæ í miðborgina. Hann tvísteig í nokkurn tíma fyrir utan húsið en þorði ekki inn. „Ég hugsaði með mér að það væru aðrir sem gætu haldið miklu betri ræður en ég svo ég snéri við og tók strætó til baka, alla leið til Hafnarfjarðar svo að mamma myndi ekki átta sig á því að ég væri á leiðinni heim,“ sagði hann. Guðni var vonsvikinn með sjálfan sig þennan dag en fékk síðar sæti í ræðuliði bekkjarins og átti sæti í liði MR í Gettu betur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í máli Guðna kom fram að metnaður snúist um að gera hlutina vel, bæta sig um umfram allt vera góður við aðra. Að ávarpinu loknu bauðst nemendum að bera fram spurningar til forsetans og fóru þá margar hendur á loft og spurðu nemendur hann um heima og geima. Ein spurningin var um það hvert væri uppáhalds buff forsetans. Hann svaraði því til að það væri buffið frá Alzheimers-félaginu enda hafi það vakið athygli á góðum málstað.

Eftir að forsetinn hafði kvatt og fjöldi nemenda tekið af sér myndir með honum var nemendum 6. til 10. bekkjar skipt í hópa þar sem þau unnu með spurningar sem stjórn nemendafélagsins hafði undirbúið. Stefnan er að vinna úr þeim metnaðarfulla punkta sem verða kynntir fyrir nemendum næstu vikur.