Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Sjónvarp: Ásdís með hollara fyrir jólin
  • Sjónvarp: Ásdís með hollara fyrir jólin
    Ásdís Ragna verður á heilsunótum í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld á ÍNN og vf.is.
Þriðjudagur 15. desember 2015 kl. 13:23

Sjónvarp: Ásdís með hollara fyrir jólin

- hollustuþáttur frá Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld

Í kvöld, þriðjudagskvöld kl. 21:00, verður sérstakur aukaþáttur frá Sjónvarpi Víkurfrétta á dagskrá ÍNN. Þátturinn er á heilsusamlegum nótum í aðdraganda jóla.

Um jólin gera flestir vel við sig í mat og drykk. Víða er boðið upp á kökur og sætindi sem mörgum reynist erfitt að neita sér um. Sjónvarp Víkurfrétta Ásdísi Rögnu Einarsdóttur grasalækni til að gefa góð ráð um það hvernig skipta má út hráefnum í bakstri og nota önnur hollari í staðann, án þess að það komi niður á góða bragðinu.

Ásdís ætlar einnig að gefa okkur ýmis góð ráð um það hvernig minnka megi álagið á meltingarkerfinu þegar fólk er búið að borða yfir sig af jólamatnum.

Þátturinn verður á ÍNN kl. 21:00 í kvöld og endursýndur á tveggja tíma fresti í sólarhring. Þáttinn má einnig nálgast hér á vf.is í HD í kvöld.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024