Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Sjóarinn síkáti með glæsilegasta móti
Frá Sjóaranum síkáta.
Miðvikudagur 28. maí 2014 kl. 09:36

Sjóarinn síkáti með glæsilegasta móti

- í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis.

Sjóarinn síkáti verður í Grindavík um helgina til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans. Í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar verður mikið lagt í dagskrá Sjóarans síkáta í ár, sérstaklega það sem snýr að fjölskyldudagskránni. Í Grindavík verður rjóminn af bestu skemmtikröftum landsins alla sjómannadagshelgina og dagskráin er metnaðarfull.

„Þetta verður frábær helgi, við munum gleðjast með sjómönnunum okkar og gerum það með stæl alla sjómannadagshelgina með glæsilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar, um bæjarhátíð Grindvíkinga sem haldin verður 30. maí - 1. júní nk.

Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem öflugasta fjölskyldu- og sjómannadagshátíð landsins. Á sama tíma og hefðbundin hátíðarhöld sjómannadagsins hafa víða verið lögð niður undanfarin ár hafa Grindvíkingar tekið þá stefnu af efla Sjóarann síkáta enn frekar enda Grindavík einn öflugasti sjávarútvegsbær landsins. Mikið er lagt upp úr því að Sjóarinn síkáti er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi en tónlistin skipar stóran sess á hátíðinni. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma fram á Sjóaranum síkáta að þessu sinni.

Segja má að Sjóarinn síkáti sé fyrsta bæjarhátíð sumarsins á landsvísu. Aðsókn hefur verið mjög góð undanfarin ár en um 20 þúsund manns hafa verið í Grindavík á Sjóaranum síkáta. Hátíðin hefur verið haldin á annan áratug en fyrir fimm árum voru gerðar talsverðar breytingar á hátíðinni sem tekist hafa virkilega vel.

„Við vildum auka þátttöku heimafólksins og í leiðinni fá góða gesti í bæinn þessa helgi sem er orðin að eins konar grindvísku ættarmóti með tilheyrandi gestum sem hafa verið til mikillar fyrirmyndar. Með því að fá heimafólk til að skreyta bæinn og skipta honum upp í litahverfi varð í raun algjör sprenging í þátttöku Grindvíkinga. Föstudagskvöldið hefur fest í sessi með skrúðgöngu og skemmtilegu bryggjuballi og svo er líf og fjör alla helgina með tónlist, skemmtiatriðum, listviðburðum og uppákomum þar sem við leggjum upp úr fjölbreyttri fjölskyldudagskrá alla helgina sem nær hámarki á sunnudeginum, sjálfum sjómannadeginum. Það besta við þessa bæjarhátíð okkar Grindvíkinga að mínu mati er hversu margir koma að henni og bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans,“ segir Þorsteinn.

„Við reynum að bæta umgjörð hátíðarinnar á hverju ári í samvinnu við þá fjölmörgu aðila sem koma að undirbúningi hennar á hverju ári en við höfum átt t.d. gott samstarf við Sjómanna- og vélstjórafélagið sem kemur myndarlega að hátíðinni, sérstaklega á sjómannadeginum sjálfum með skemmtidagskrá og heiðursviðurkenningum, kappróðri, koddaslag og ýmsu fleiru. Við bjóðum alla landsmenn velkomna á Sjóarann síkáta,“ segir Þorsteinn.

Tjaldsvæðið í Grindavík er glæsilegt og hefur aðsókn þar verið góð á Sjóaranum síkáta. Þar er nóg pláss alla helgina. Aldurstakmark er 20 ár og er næturgæsla á svæðinu þar sem unglingafyllerí er einfaldlega ekki liðið. Dagskrána er hægt að nálgast í heild sinni á www.sjoarinnsikati.is.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024