Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Sjóarinn síkáti í stuði
Þriðjudagur 1. júní 2010 kl. 12:04

Sjóarinn síkáti í stuði

- Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti haldin í Grindavík 4.-6. júní nk.


„Sjóarinn síkáti er bæjarhátíð okkar Grindavíkinga sem við leggjum mikinn metnað í. Hún tókst virkilega vel í fyrra en þá komu yfir tíu þúsund gestir. Það er stutt að heimsækja Grindavík frá höfuðborgarsvæðinu eða aðeins 50 km. Dagskráin hefur aldrei verið glæsilegri en í ár, hér er hin eina og sanna Sjómannadagshelgi með öllu tilheyrandi. Ég vil taka skýrt fram að þetta er fyrst og fremst fjölskylduhátíð en ekki unglingafylleríssamkoma. Hér er ströng gæsla og 18 ára aldurstakmark á tjaldsvæðinu,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar um bæjarhátíðina Sjóarann síkáta sem haldin verður í Grindavík helgina 4.-6. júní nk.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Sjóarinn síkáti hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins. Dagskráin er ótrúlega fjölbreytt og jafnframt verður mikið lagt upp úr því að virkja bæjarbúa til þátttöku en bænum hefur verið skipt upp í fjögur litahverfi og fara bæjarbúar hamförum í skreytingum þessa dagana.


„Grindavík er eitthvert öflugasta bæjarfélag landsins og með tilkomu nýja tjaldsvæðisins sem opnað var í fyrra erum við einnig að stimpla okkur á kortið sem öflugur ferðamannabær en hér er ótrúlega margt skemmtilegt að sjá og gera. Segja má að bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti marki upphafið á skemmtilegu sumri hér suður með sjó," segir Þorsteinn.


Upphitun hefst á fimmtudagskvöldinu og svo verður líf og fjör á föstudagskvöldinu með útitónleikum og skemmtunum. Á laugardeginum er bærinn undirlagður af ýmsum skemmtunum fyrir alla fjölskylduna. Má þar nefna ratleik, leiktæki fyrir börnin, glæsilega barnadagskrá, landsþekkta skemmtikrafta, keppnin Sterkasti maður á Íslandi, Brúðubíllinn verður á sínum stað og andlitsmálun fyrir krakkana, svo fátt eitt sé talið. Foreldrar og fullorðnir fá sinn skammt en þarna verða ýmsar uppákomur og sýningar. Um kvöldið verða svo böll á skemmtistöðum bæjarins. Á sunnudeginum verða hefðbundin hátíðahöld á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur ásamt flottri dagskrá á hátíðarsviðinu og ýmsu fleiru. Þessa helgi verður einnig golfmót, sundmót, fótboltamót, körfuboltamót og ýmislegt fleira. Sjóaranum síkáta lýkur svo með glæsilegum tónleikum Mannakorna í íþróttahúsinu á sunnudagskvöldinu.


Þorsteinn hvetur landsmenn til þess að fjölmenna til Grindavíkur en hægt er að nálgast dagskrá Sjóarans síkáta á heimasíðu bæjarins, www.grindavik.is


„Sérstaklega finnst okkur gaman að sjá brottflutta Grindvíkinga mæta til heimahaganna. Þá eru líka sjómenn og fjölskyldur þeirra í öðrum bæjarfélögum einnig hvattir til þess að koma til Grindavíkur til að halda upp á daginn því hvergi á landinu eru flottari hátíðahöld til heiðurs íslenska sjómanninum en hér í Grindavík,“ sagði Þorsteinn að endingu.



Landslið skemmtikrafta:
Mannakorn
Ingó og Veðurguðirnir
Í Svörtum fötum
Dúkkulísurnar
Hvanndalsbræður
Friðrik Ómar og Jogvan
Hera Björk
Dalton

Fyrir börnin:
Skoppa og Skrítla
Íþróttaálfurinn og Solla stirða
Brúðubíllinn
John töframaðu
Sirkus Sóley
Fjórhjólaferðir
Hestateyming
Leiktæki
Andlitsmálun
Paintball
Skemmtisigling
Dorgveiðikeppni
Sjóræninginn Jón Sparrow
Svabbi sjóari
Úti vatnsrennibraut
Sjópulsa

Ýmislegt fleira:
Sterkasti maður á Íslandi
Íslandsmeistarakeppni í netaviðgerðum
Handverksmarkaður
Ratleikur
Sýningar
Skrúðganga
Kappróður
Koddaslagur
Kararóður