Bygg
Bygg

Mannlíf

Sjóarinn síkáti - myndir frá laugardegi
Pollapönkararnir.
Miðvikudagur 4. júní 2014 kl. 11:04

Sjóarinn síkáti - myndir frá laugardegi

Fjölbreytt dagskrá í votviðrinu.

Eftir stormasama nótt og morgun, leit út fyrir um hádegisbil á laugardag að þokkalegasta veður yrði til hátíðarhalda á Sjóaranum síkáta. Þegar Pollapönkaranir stigu á svið um hálf tvö var komið hið skaplegasta veður, sem var þó aðeins skammgóður vermir! Grindvíkingar létu veðrið samt ekki á sig fá og skemmtu sér konunglega, ásamt gestum.

Dagskráin sem skipulögð hafði verið var afar glæsileg og gekk sinn vanagang þrátt fyrir að veðrið hefði mátt vera betra. Pollapönk keyrðu upp stuðið uppúr hádegi, og síðan stigu hinir ýmsu skemmtikraftar á svið. Einar Mikael töframaður sýndi listir sínar, Sveppi og Villi skemmtu eins og þeim einum er lagið og fjölmörg söngatriði voru á boðstólnum.

Að vanda var mikil áhersla lögð á dagskrá fyrir börnin og var mikill erill í hjá Hopp og skopp leiktækjum alla helgina og færri komust að en vildu. Dagskráin var eins og áður sagði glæsileg og viðburðir í gangi útum allan bæ sem gengu vel þrátt fyrir vætutíð. Tjaldstæðið var nokkuð þétt setið þó vissulega hafi stundum verið þrengra á þingi en í ár.

Bílakjarninn
Bílakjarninn