Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Sjálfsagðir hlutir og konur og myndlist
Miðvikudagur 21. janúar 2015 kl. 21:46

Sjálfsagðir hlutir og konur og myndlist

– Listasafn Reykjanesbæjar iðar af lífi næsta laugardag

Auk sýningar á verkum Gunnlaugs Scheving opna tvær aðrar sýningar í Duushúsum nk. laugardag á vegum Listasafns Reykjanesbæjar og munu þær einnig standa til 8. mars. Sýningarnar eru:

SJÁLFSAGÐIR HLUTIR
Sýningin Sjálfsagðir hlutir kemur frá Hönnunarsafni Íslands og fjallar um þekkta hluti úr hönnunarsögunni. Tilgangur sýningarinnar er að kynna efni og sögu þekktra og oft klassískra hluta í hönnunarsögunni. Nær allt sem við snertum hefur verið hannað á einhvern hátt. Á sýningunni  eru sýndir nokkrir af þeim hlutum sem við lítum á sem sjálfsagða í daglegu lífi og efnisvali þeirra gerð skil. Augnlinsur, tannstönglar, klósett og bréfaklemmur eru dæmi um hluti sem gegna allir á sinn hátt mikilvægu hlutverki og hafa jafnvel sannað gildi sitt sem „klassískir“ á þann hátt að endurnýjun eða endurhönnun virðist óþörf þegar við virðum þá fyrir okkur í dag. Sýningarstjóri er Þóra Sigurbjörnsdóttir.

15/15 – KONUR OG MYNDLIST
Sýning á verkum fimmtán íslenskra kvenna úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar í tilefni þess að árið 2015 eru liðin 100 ár frá því að konur fengu kosningarétt.  Á sýningunni má m.a. sjá olíuverk, tússteikningar og  vatnslitamyndir og hafa verkin komist í eigu safnsins á síðustu fimmtán  árum. Sýningarstjóri er Valgerður Guðmundsdóttir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024