Föstudagur 30. ágúst 2019 kl. 11:22
Sinfónían vinsæl í Reykjanesbæ
Bæjarbúar hafa aldeilis tekið vel í tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem haldnir verða í Stapa 3. september nk. í tilefni 25 ára afmælis Reykjanesbæjar. Ókeypis er á tónleikana og hófst útdeiling miða á hádegi 27. ágúst sl. Í gærkvöldi voru allir miðar roknir út.