Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Sigurvegari Samfés í ár stefnir á Ísland got talent
Jóhanna Ruth með verðlaunagripinn sem er engin smásmíði og mjög þungur.
Mánudagur 23. mars 2015 kl. 08:45

Sigurvegari Samfés í ár stefnir á Ísland got talent

Söngur er eina áhugamálið.

„Það er gott að heyra að fólki finnst ég syngja vel. Margir hafa óskað mér til hamingju síðustu daga, m.a. í skólanum,“ segir Jóhanna Ruth Luna Jose, sem bar sigur úr býtum í Söngkeppni Samfés sem fór fram í Laugardalshöll fyrir skömmu. Jóhanna Ruth keppni fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima í Reykjanesbæ og söng lagið Girl on Fire með Alicia Keys.

Jóhanna er 13 ára og stundar námi í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ. Henni finnst skemmtilegt að búa þar og segir að henni gangi vel í skólanum. „Ég á líka marga vini sem eru duglegir að kenna mér íslensku.“ Jóhanna Ruth hefur búið á Íslandi í fjögur ár, en hún er frá Filippseyjum eins og foreldrarnir. „Pabbi söng mikið þegar hann var ungur og mamma líka. Ég hef alltaf sungið mikið og mamma og pabbi hafa hvatt mig óspart. Ég hef oft sungið við ýmis tilefni en ekki fyrir framan svona stóran hóp.“ Hún stefnir á að taka þátt í Ísland got talent og ekki er ólíklegt að hún syngi lög með Celine Dion, Whitney Houston eða Alicia Keys. Spurð að lokum um framtíðaráform í söng segist Jóhanna Ruth alveg geta hugsað sér að starfa sem söngkona. „Það er eiginlega eina áhugamálið mitt.“ 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Jóhanna Ruth mun fljótlega syngja fyrir okkur í Sjónvarpi Víkurfrétta. 

Fjölskylda Jóhönnu Ruthar. 

VF/Olga Björt