Mannlíf

Sigríður Etna gefur út sína fyrstu barnabók
Freydís Kristjánsdóttir og Sigríður Etna
Þriðjudagur 21. nóvember 2017 kl. 19:25

Sigríður Etna gefur út sína fyrstu barnabók

Sigríður Etna Marinósdóttir hefur gefið út sína fyrstu barnabók, bókin ber heitið Etna og Enok fara í sveitina og var haldið upp á útgáfu hennar á Bókasafni Grindavíkur í dag.

Sigríður Etna vinnur í félagsmiðstöðinni Þrumunni í Grindavík en bókin gerist á Tálknafirði þaðan sem Sigríður Etna kemur en hugmyndin að bókinni kom einmitt þegar hún var stödd á Tálknafirði. Freydís Kristjánsdóttir myndskreytir bókina en í útgáfuhófinu voru til sýnis skissur eftir Freydísi sem voru frumgerðir fyrir bókina. Hægt er að kaupa bókina í öllum helstu bókaverslunum landsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuhófinu í dag.

 

Etna og Freydís árita bækur fyrir ungan aðdáanda.

Þessir töffarar létu sig ekki vanta.

Skissur Freydísar voru til sýnis.

Forsíða bókarinnar, Etna og Enok fara í sveitina.

Sigríður Etna áritar bók.