Síðustu sýningar á Killer Joe
	Síðustu sýningar Leikfélags Keflavíkur á leikverkinu Killer Joe verða í kvöld, fimmtudagskvöld, og á morgun, föstudagskvöld.
	
	Verkið hefur hlotið mjög góða dóma en um er að ræða svarta kómedíu sem gerist í hjólhýsi í Texas.
	
	Nánari upplýsingar um sýningartíma og miðasölu eru á vef Leikfélags Keflavíkur, www.lk.is.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				