Síðustu miðarnir á þorrablót Njarðvíkur í sölu
Möguleiki er á að útvega miða á þorrablót Ungmennafélags Njarðvíkur fram til mánudags ef fólk hefur áhuga og þá í síma 421-2895.
Dagskráin verður stórglæsileg en hún samanstendur af hinum árlega annál sem Ólafur Thordersen flytur, Jógvan og Friðrik Ómar koma og syngja, dansatriði verður frá Bynballett, Pétur Jóhann Sigfússon mætir á svæðið, að ógleymdu happdrætti og síðast en ekki síst mun Mummi Hermanns halda uppi fjörinu.
Kynnir verður Örvar Kristjánsson og Örn Garðarson veitingarmaður sér um veitingarnar.
Þegar hafa selst rúmlega 260 miðar, svo það er um að gera að næla sér í miða sem allra fyrst. Miðaverð er aðeins 4500 kr.
Koma svo allir og mæta!