SSS uppbyggingarsjóður
SSS uppbyggingarsjóður

Mannlíf

Síðbúin þrettándagleði í Reykjanesbæ
Sunnudagur 9. janúar 2011 kl. 21:19

Síðbúin þrettándagleði í Reykjanesbæ

Þrettándagleði í Reykjanesbæ hefur verið frestað vegna veðurs fram á mánudaginn 10. janúar kl. 18:00. Hátíðarhöld munu fara fram við Ægisgötu en dagskráin hefst með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar verða í eldlínunni þegar jólin verða kvödd fjórum dögum síðar en venja er. Heitt kakó verður í boði Reykjanesbæjar.
Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátarnir, Björgunarsveitin Suðurnes, Léttsveit og Trommusveit Tónlistarskólans og tröllastelpan Fjóla taka þátt í dagskránni. Dagskránni lýkur svo með flugeldasýningu á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

Svo er bara að vona að veðurguðirnir verði í góðu skapi.

Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025