Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Síðasta tækifæri til að sjá sýningu Önnu Hallin
Fimmtudagur 2. júní 2005 kl. 15:04

Síðasta tækifæri til að sjá sýningu Önnu Hallin

Sunnudagurinn 5. júní er síðasti sýningardagur sýningar Önnu Hallin ”Lending” í sýningarýminu SUÐSUÐVESTUR Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ.

Á sýningunni eru ný verk; teikningar, skúlptúrar, teiknimynd og vídeóauga. Kveikjan að myndverkaröðinni eru hugmyndir um snertifleti drauma, um þyngdarleysi. Í skúmaskotum heimila og opinbera staða býr hið undirmeðvitaða.  Hvar geymum við minningar og drauma og í hvaða herbergi komum við þeim fyrir? Í kjallaranum, upp á háalofti, í klæðaskápnum eða fram á gangi? Hvernig er eðli rýmisins, form og staðsetning?

Minning sem býr upp á háalofti hefur annan keim en þær minningar sem hafast við í kjallaranum. Í kjallaranum eru rætur hússins, á bak við veggi og undir gólfi kjallarans býr jörðin.  Það sem hefst við í kjallaranum hreyfir sig hægar, skýst ekki um, er leyndardómsfullt...
Leit að lendingarstað fyrir möguleika.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024