Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Síðasta sýningarhelgi; Slíður (the heart is a lonely hunter)
Föstudagur 3. júní 2011 kl. 09:25

Síðasta sýningarhelgi; Slíður (the heart is a lonely hunter)

Sýning Margrétar H. Blöndal í Suðsuðvestur lýkur sunnudaginn 5. júní.

Teikningarnar sem Margrét sýnir í Suðsuðvestur voru dregnar upp á meðan á vinnustofudvöl hennar stóð í Laurenz Haus Stiftung í Basel í Sviss veturinn 2010 - 2011. Margrét hefur útbúið sérstaka umgjörð um teikningarnar sem eru allar í sömu stærð, eins konar hulstur, og er hverri teikningu rennt inn um rifu á kantinum á gegnsæjum kassa. Hver teikning verður þannig að þrívíðum hlut sem er ýmist stillt upp á gólfi eða hengdur á vegg. Með nafnagiftinni, Slíður, má lesa framsetninguna sem svo að
Margrét hafi slíðrað verkin um sinn, að þau séu í hvíld að loknum átökum. Teikningarnar spruttu allar af ákveðnum fyrirmyndum en þær eru sjaldnast sýnilegar í heild sinni og uppdrátturinn í raun aðeins brotakennd kortlagning af umhverfinu.


Þær vega salt í togstreitu á milli umhverfisins og sjálfs sín og eru nú slíðraðar í nokkurs konar vopnahléi. Þótt Margrét kunni í heiti sýningarinnar að gefa til kynna átök listarinnar við að fanga umhverfi sitt vísar hugtakið slíður einnig til hvíldar og verndar enda notað um himnu sem hjúpar nýgræðing. Teikningarnar eru unnar af varfærni og alúð og veitir ekki af skjóli í umgjörð sýningarkassanna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Margrét H. Blöndal er fædd árið 1970 í Reykjavík. Hún lærði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og að auki í Mason Gross School of Arts í Rutgers háskólanum í New Jersey í Bandaríkjunum þaðan sem hún útskrifaðist árið 1997. Hún hefur undanfarin ár haldið einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Fort Worth Contemporary Arts í Texas í Bandaríkjunum, Mother´s Tankstation í Dublin á Írlandi og í galleríi Nicolas Krupp í Basel í Sviss. Margrét átti verk á hinni alþjóðlegu stórsýningu Manifasta
7 á Ítalíu árið 2008 og var tilnefnd til Sjónlistaverðlaunanna sama ár. Þess má geta að Margrét sýnir Slíður (the heart is a lonley hunter) á 6. Momentum tvíæringnum í Moss í Noregi í sumar.

Hér má finna viðtal við M.H.Blöndal sem tekið var í tilefni sýningarinnar.

Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22, Keflavík.
Opið um helgar frá kl.2-5 og eftir samkomulagi í síma; 662 8785
www.sudsudvestur.is