Síðasta sýningarhelgi á „Samruna“ við Duushús
Síðasti sýningardagur á ljósmyndasýningu Vigdísar Viggósdóttur utandyra á útvegg Duushúsa sem snýr að smábátahöfninni verður á sunnudaginn, 27. október. Sýningin opnaði á Ljósanótt.
Vigdís hafði þetta að segja um sýninguna þegar hún opnaði: „Ég er á þriðja námsári í Ljósmyndaskólanum og mun útskrifast í janúar 2014. Síðastliðinn vetur var ég að leita að myndefni í heimabæ mínum. Ég fór á stjá til að skoða úthverfi hans. Ekki leist mér á, rusl alls staðar, þó sérstaklega á einum stað. Ég hafði fundið gamla ruslahauginn sem var fyrir löngu búið að afleggja, allavega af hálfu bæjarins, en eins og svo oft vill verða, losar fólk sig við rusl bara þar sem því hentar.
Fyrst fylltist ég reiði og vonleysi yfir þessu, en fór svo að rýna í ruslið og undraðist hvað móðir náttúra er mögnuð. Þarna var ruslið að renna saman við náttúruna, mosi og annar gróður var að taka sér bólfestu í því, sól, frost og vindur lögðu sitt af mörkum við að brjóta það niður. Ég fylltist von og sá ferlið fyrir mér, hvernig móðir náttúra mun að lokum sigrast á þessum óhroða. Einnig hefur ruslið í mínum huga hliðstæðu í lífi okkar mannanna. Við lendum í allskonar áföllum sem fylla hjörtu okkur sorg, okkur svíður undan reynslunni, en að ákveðnum tíma liðnum tökum við hana í sátt og verðum í flestum tilfellum betri manneskjur fyrir vikið, þroskumst sem sé. Því heitir verkið SAMRUNI, með vísun í ákveðið tímabil í ferlinu, því svo sannarlega er þetta ferli, sem byrjar á sorpi og endar með sigri.
Ég lýsi þessu ferli með átta orðum sem öll byrja á S, einungis átta orð þurfti til að segja þessa sögu, auk þess er „8“ vísun í eilífðartáknið, þar sem náttúran endurtekur sig aftur og aftur, sagan endalausa með eilítið breyttri ásýnd í hverri umferð, en óslitin“.