Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Síðasta sýningarhelgi á lögum unga fólksins
Föstudagur 8. mars 2013 kl. 09:33

Síðasta sýningarhelgi á lögum unga fólksins

Um helgina lýkur sýningunni Lög unga fólksins í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Sýningin sem var opnuð þann 26. janúar hefur notið mikillar hylli.  Á henni er að finna ný verk, málverk, skúlptúra og innsetningar,  eftir sex myndlistarmenn, Davíð Örn Halldórsson, Guðmund Thoroddsen, Jóhönnu Kristbjörgu Sigurðardóttur, Mörtu Maríu Jónsdóttur, Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur og Ragnar Jónasson. Öll eru þau fædd á árunum 1974 til 1982 og eiga að baki bæði einkasýningar og samsýningar heima og erlendis.

Heiti sýningarinnar er tvírætt, vísar bæði  til áhuga listamannanna á dægurtónlist og dægurmenningu almennt og hins „lagskipta málverks“, bæði í tæknilegu og menningarlegu tilliti, enda eru verk þeirra samsett úr mörgum lögum nútíma sjónmenningar. Þetta eru verk máluð á striga, tréplötur, viðarbúta og aðskotahluti, höggin í rótarhnyðjur, hlaðin úr keramikvösum, að ógleymdum verkum eftir Davíð Örn og Ingunni Fjólu, sem gerð eru sérstaklega fyrir sýningarrýmið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á meðal gesta sem lagt hafa leið sína í Listasafnið eru um það bil 350 nemendur sem hafa fengið leiðsögn um sýninguna sem höfðar sérlega vel til þeirra.

Um miðjan febrúar var Sigrún Sandra Ólafsdóttir, annar tveggja sýningarstjóranna, með leiðsögn um sýninguna sem varpaði ljósi á hugmyndina á bak við sýninguna, sérkenni hvers listamanns og hvað það var sem gerði það að verkum að leiðir þeirra lágu saman í þessari sýningu.

Sýningarstjórar eru Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur og Sigrún Sandra Ólafsdóttir, sem til skamms tíma rak Gallerí Ágúst.

Síðasti sýningardagur er 10. mars. Safnið er opið alla virka daga frá kl. 12.00-17.00 og um helgar frá kl. 13.00-17.00. Ókeypis aðgangur.