Miðvikudagur 15. ágúst 2007 kl. 18:33
Síðasta sýningarhelgi á Húsafellsmyndum Ásgríms Jónssonar í Listasafni Reykjanesbæjar

Sumarsýningu Listasafns Reykjanesbæjar á Húsafellsmyndum Ásgríms Jónssonar lýkur sunnudaginn 18. júní. Verkin eru eign Listasafns Íslands en L.Í. á stærsta safn verka Ásgríms. Húsafellsmyndir Ásgríms eru ákveðinn þáttur í þessari safneign en Ásgrímur dvaldist mikið á Húsafelli í Borgarfirði til að mála. Um er að ræða bæði olíuverk og vatnslitamyndir. Sýningin hefur verið vel sótt og hlotið góða dóma.
Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum og þar er opið alla daga frá 13:00 til 17:30 og aðgangur er ókeypis.
VF-mynd/elg