Síðasta ganga Hitaveitu Suðurnesja og Geysis Green Energy
Síðasta ganga af 13 gönguferðum Hitaveitu Suðurnesja og Geysis Green
Energy var miðvikudaginn 13.ágúst sl.
Gengin var ströndin frá Garðskagavita til Sandgerðis í blíðsakapar veðri. Gangan var við hæfi allra og voru nokkur börn með í för. Tvær systur áttu 9 ára afmæli þennan dag og voru ásamt móður sinni í göngunni. Gönguhópurinn söng afmælissönginn fyrir systurnar.
Rannveig sagði skemmtilega frá viðburðarríkum atburðum úr sögu Íslendinga sem gerðust á þessum slóðum og frá landnámsmönnum sem búsettir voru á þessu svæði.
Gönguhópurinn endað síðan við veitingahúsið Vitann í Sandgerði þar sem eigendur Vitans buðu upp á grillaðar pylsur og gos.
Rannveig Garðarsdóttir, leiðsögumaður þakkaði að lokum öllum þátttakendum í göngunum í sumar og sagði að þetta hefði gengið vel og var sérstaklega ánægð með hvað margir komu í gönguferðirnar og hvað veðrið lék við þau í allt sumar.
Rannveig fékk að lokum gott klapp frá ánægðum gönguhóp sem er ríkari af minningum og þekkingu eftir að hafa notið leiðsagnar hennar í sumar.
Viðtal við Rannveigu verður í næsta tölublaði Víkurfréttta.
Ljósmyndir úr ferðunum er að finna á ljósmyndavef Víkurfrétta.