Mánudagur 10. apríl 2006 kl. 15:25
SGOR með páskabingó

SGOR - Samtök Gegn Ofbeldi í Reykjanesbæ verður með páskabingó á morgun, þriðjudag, kl. 20:00 í 88 Húsinu. Vegleg páskaegg verða í verðlaun og kostar spjaldið 100 kr. Allur ágóði af spjöldunum rennur í styrktarsjóð SGOR. Allir eru velkomnir og vill SGOR óska öllum gleðilega páska.
88 Húsið verður með síðustu opnun fyrir páska miðvikudaginn 12. apríl og opnar aftur þriðjudaginn 18. apríl. Sem sagt það verðru lokað 13. apríl, 14. apríl, 15. apríl, 16. apríl, og 17 apríl. Sumardaginn fyrsta, 20. apríl, verður einnig lokað.