Bygg
Bygg

Mannlíf

Sex rétta máltíð á Asia Kitchen fyrir 2000 kall
Laugardagur 18. apríl 2020 kl. 14:01

Sex rétta máltíð á Asia Kitchen fyrir 2000 kall

Einar Lárus Ragnarsson er starfsmaður á plani hjá Snittenonline.com, fyrirtæki sem Einar rekur á Spáni þar sem hann er búsettur. Hann tekur COVID-19 með jafnaðargeði.

Sjáið viðtalið hér með fleiri myndum!

Bílakjarninn
Bílakjarninn

— Hvernig voru páskarnir?

Útgöngubann hér þannig að það var innanhússferðalag.

— Hvernig páskaegg fékkstu og hver var málshátturinn?

Páskaeggið er á leiðinni, sá í gær að það er í Madrid. Síðasti málshátturinn sem ég fékk var „Betra er autt rúm en illa skipað“.

— Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

Við erum með myndfjölskyldspjall í gegnum Messenger.

— Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?

Foreldrarnir til að ganga frá flugmiðum fyrir heimsóknina þeirra.

— Hvernig ertu að upplifa nýjustu tíðindi um að það muni jafnvel taka margar vikur inn í sumarið að aflétta hömlum vegna COVID-19?

Engin sérstök upplifun. Jafnaðargeð, var viðbúið.

— Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?

Nægjusemi, virðingu og ag sem hefur verið skortur á í okkar þjóðfélagi.

— Ertu liðtækur í eldhúsinu?

Já, mjög svo.

— Hvað finnst þér virkilega gott að borða?

Léttreyktur lambahryggur með góðri sósu og meðlæti. Má alls ekki vanta asíur.

— Hvað var í páskamatinn?

Lambalæri að hætti Evu Laufeyjar.

— Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?

Kjötsúpu.

— Hvað var bakað síðast á þínu heimili?

Mömmukökur.

— Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað myndir þú kaupa í matinn?

Sex rétta máltíð á Asia Kitchen.

— Hvað hefur gott gerst í vikunni?

Tölurnar eru á niðurleið og það var aflétt vinnubanni.

Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali? Hver er spurningin og svarið við henni?

– Hvar ertu staddur núna?
Heima hjá mér, í Almoradí.

MARGT FLEIRA Í FJÖLBREYTTUM 76 BLS. VÍKURFRÉTTUM VIKUNNAR