Sér það sem flestir sjá ekki
Grindvíkingurinn Haraldur Hjálmarsson tekur myndavélina með sér í vinnuna.
Áhugaljósmyndarinn og sjómaðurinn Haraldur Hjálmarsson hefur búið í Grindavík frá sex ára aldri. Hann keypti sína fyrstu myndavél fyrir 30 árum í Englandi og finnst fátt skemmtilegra annað en að taka myndir í íslenskri náttúru. Hann hefur möguleika á sjónarhornum úti á sjó sem fólkið í landi missir af og festir það gjarnan á filmu.
Flugeldasýning við Jökulsárlón á Sólheimasandi.
Fýll sat á dekkinu og var ekki sáttur þegar hann var tekinn höndum.
„Ég á fyrstu myndavélina mín ennþá og hef spáð í að setja í hana filmu en það er þægilegra og ódýrara að nota stafrænar vélar,“ segir Haraldur, sem hefur mestan áhuga á að taka náttúrumyndir. „Ég fer þangað sem fólk fer ekki mikið og tek myndir. Klifra jafnvel niður berg niður í fjöru og næ myndum sem sýna annað sýnishorn en í almannaleið. “
Gamall traktor í norðurljósabjarma.
Hraunfossar. Í miðri myndatöku birtist loftsteinn - það er ljósa súlan við hólinn.
Haraldur hefur ferðast víða um land til að taka myndir. Hefur farið á flesta staði á landinu, þvælst hingað og þangað til að ná myndefni. Stundum hefur hann lagt af stað að kvöldi til og komið heim að morgni þegar aðrir eru að fara til vinnu. Hann segir tíma sólarhringsins ekki skipta máli í slíku samhengi. Þegar siglt er inn fallegan fjörð þá sér maður eyðibýli, fossa og landslagið á annan hátt en fólkið sér það í landi.
Hornbjarg og Hælavíkurbjarg.
Gefandi og um leið spennandi
Vegna vinnu sinnar sem sjómaður getur Haraldur oft leikið sér við myndatöku í landi þegar aðrir eru að vinna. Hann tekur alltaf myndavél með sér á sjóinn. „Ég næ öðruvísi myndefni frá sjónum sem aðrir sjá ekki, t.d. hafís og borgarísjaka. Það er svo heillandi við náttúruna tilfinningin að vera einn í heiminum,“ segir Haraldur og bætir við að bæði sé gefandi og um leið spennandi að sjá hvað kemur út eftir ljósmyndaferðirnar. Hann vinnur myndirnar ekki mikið á eftir. „Bara aðeins fiktað sjálfur og ef mér finnst það flott þá læt ég það duga. Ég er að þessu fyrir sjálfan mig og ef aðrir hafa gaman af því líka, þá er það bara fínt. Er ekkert að þessu endilega til að selja verkin,“ segir Haraldur glettinn.
Gamla Hvítárbrúin. Bíll kom og lýsti hana svona flott upp eitt augnablik.
Karfahal að koma upp úr sjónum.
Kirkjufell við Grundarfjörð.
Tvær forsíðumyndir í Mogga
Spurður um minnistæðustu myndirnar segir Haraldur það vera myndina af Hornbjarginu þegar sólin kom upp og fallegur roði á himninum. „Einnig er önnur mynd er af fálkanum með stokkandarstegginn í klónum. Hún varð mín fyrsta forsíðumynd í Morgunblaðinu.“ Haraldur hefur haldið eina sýningu ásamt þremur öðrum Grindavíkingum og hefur engin áform um fleiri sýningar eins og er.
Brugðið á leik við að merkja krumma.
Kirkjugarðurinn á Stað í Grindavík.
Spegilsléttur Kolgrafarfjörður.
VF/Olga Björt