Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Selma og Hermann með fyrirlestra í Akurskóla
Selma Björk og Hermann Jónsson.
Miðvikudagur 2. apríl 2014 kl. 09:12

Selma og Hermann með fyrirlestra í Akurskóla

á morgun og annað kvöld.

Selma Björk Hermannsdóttir kemur í heimsókn í Akurskóla á morgun, 3. apríl, og ræðir við nemendur í 5. - 10. bekk. Hún segir m.a. frá því hvernig hún kaus að takast á við eineltið sem hún varð fyrir og gefur nemendum góð ráð.

Selma Björk hefur kosið að svara hatri með ást eins og hún orðar það. Hún leggur áherslu á að finna til með þeim sem leggja í einelti og svara þeim með ást. Það afvopnar þann sem leggur í einelti og hann nær ekki því fram sem hann er að reyna.
 
Hermann Jónsson, faðir Selmu Bjarkar, verður einnig með stuttan fyrirlestur í sal Akurskóla um kvöldið, kl. 19:30. Fyrirlesturinn er í boði foreldrafélags Akurskóla og hann á erindi til allra og eru foreldrar hvattir til þess að koma og hlusta á hann.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Selma hélt einnig fyrirlestur í Njarðvíkurskóla í nóvember í fyrra. Þá var þessi mynd tekin.