Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Selló- og hörputónleikar í Útskálakirkju
Laugardagur 25. ágúst 2012 kl. 18:00

Selló- og hörputónleikar í Útskálakirkju


Sunnudaginn 26. ágúst kl. 17 verða haldnir tónleikar í Útskálakirkju í Garði. Gunnar Kvaran sellóleikari og Elísabet Waage hörpuleikari munu leika þar tónleika undir yfirskriftinni:  Melankólía í melódíum og fjörugir dansar. Á efnisskránni er barokktónlist og rómantík ásamt draumkenndum sýnum í tónsmíð sem samin var sérstaklega fyrir dúóið. Flutt verður tónlist eftir m.a. Couperin, John Speight, Sigfús Einarsson, Saint-Saëns og Granados.  Dökkur og safaríkur sellótónninn og bjartir hörpuhljómarnir blandast sérlega ljúflega.

Gunnar og Elísabet hafa starfað saman um langa hríð. Efnisskrá þeirra hefur teygst frá barokktímanum til dagsins í dag. Þau hafa haldið tónleika víða um land s.s. á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarnesi og Vestmannaeyjum, á Þingeyrum og Seyðisfirði. Árið 2004 gaf Zonet útgáfan út geisladisk þeirra. Þar má finna ýmsar perlur, m.a. Schubert Arpeggione sónötuna og Svaninn eftir Saint-Saëns. Aðgangseyrir er kr. 1500/1000

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024