Sunnudagur 27. febrúar 2005 kl. 17:26
Seldu kökur í SpKef

10. bekkur Njarðvíkurskóla hélt kökusölu í anddyri SpKef í Njarðvík um daginn. Voru þau að safna fyrir ferðalagi og gekk nokkuð vel.
Terturnar voru ansi girnilegar og seldust upp á skotstundu. Einungis ein var eftir þegar ljósmyndari Víkurfrétta smellti mynd af krökkunum.