Schwarzenegger kemur með jólin
Jón Aðalgeir Ólafsson er einka- og styrktarþjálfari frá Reykjanesbæ en er búsettur í Sandgerði. Jón var snemma kominn í jólaskap í ár þar sem þessi jól verða fyrstu jól dóttur hans, en hann gæti alveg hugsað sér að eyða jólunum á sundlaugabakkanum í Flórída einn daginn.
Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið?
Jingle All the Way, fátt sem kemur mér í jafn mikið jólaskap og Schwarzenegger að eltast við Turbo Man dúkkuna!
Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir?
Við höfum bara verið að senda kveðju á Facebook en stefnan er að senda út jólakort í ár.
Ertu vanafastur um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf yfir hátíðarnar?
Svona upp að vissu marki. Ég fer yfirleitt í sömu jólaboðin á sömu tímum og svo er það náttúrulega bæjarröltið á Þorláksmessukvöld.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Ein jólin langaði mig svakalega í rafmagnsgítar sem ég fékk svo en uppgötvaði stuttu seinna að ég hafði bara enga tónlistarhæfileika.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum?
Eitt sem kemur í huga eru súkkulaðidagatölin. Mamma sagði okkur bræðrunum að það ætti bara opna einn glugga í einu en hún sagði hins vegar ekkert um að það mætti ekki taka bakhliðina af og borða allt súkkulaðið.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Við fjölskyldan verðum hjá tengdó og þar er hefð fyrir því að borða kalkún á aðfangadag. Hann er alveg uppáhalds!
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Jólaandinn hefur yfirleitt komið frekar seint hjá mér en í ár eru fyrstu jól dóttur minnar og það hefur komið mér fyrr í gírinn að fá að upplifa alla jólastemminguna með henni.
Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin?
Ég hef ekki gert það ennþá en ég gæti alveg hugsað mér að eyða jólunum á sundlaugarbakkanum í Flórída.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Ég var alltaf voðalega hrifinn af toppnum á jólatrénu þegar ég var yngri. Hann varð að standast ákveðnar kröfur.
Hvernig verð þú jóladegi?
Ætli ég reyni ekki að troða inn góðri lyftingaæfingu en annars verður deginum eytt heima í faðmi fjölskyldunnar. Svo höldum við í jólaboð um kvöldið.