Mannlíf

Saumað fyrir umhverfið í Bókasafni Reykjanesbæjar
Föstudagur 2. nóvember 2018 kl. 12:11

Saumað fyrir umhverfið í Bókasafni Reykjanesbæjar

„Saumað fyrir umhverfið“ verður í Bókasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 3. nóvember kl. 12-14 og er alltaf fyrsta laugardag hvers mánaðar.

„Saumað fyrir umhverfið“ verður í Bókasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 3. nóvember kl. 12-14 og er alltaf fyrsta laugardag hvers mánaðar.

Saumaðir verða margnota taupokar sem eru síðan gefnir í Pokastöðina. Áhugasamir þurfa ekki að kunna að sauma til þess að geta tekið þátt. Efni og saumavélar verða á staðnum en þátttakendur eru hvattir til að mæta með alls konar efni og einnig er í boði að mæta með eigin saumavélar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hvað er Pokastöð?

Pokastöðvar eru til í nokkrum sveitarfélögum á Íslandi en það er stöð þar sem fólk getur fengið að láni margnota taupoka, t.d. í bókasafninu og matvöruverslunum. Margir eiga það til að gleyma margnota pokum heima og þá er hægt að fá taupoka að láni og skila honum síðar á hvaða Pokastöð sem er.

Af hverju að sauma fyrir umhverfið?

Bókasafnið tekur þátt í átakinu Plastlaus september sem miðar að því að vekja fólk til umhugsunar um ofnotkun plasts og skaðsemi plasts fyrir umhverfið. Margnota taupokar geta auðveldlega komið í stað plastpoka.