HSS
HSS

Mannlíf

Sauðburður hafinn í Grindavík: tvær ær þrílembdar
Fimmtudagur 6. maí 2004 kl. 15:11

Sauðburður hafinn í Grindavík: tvær ær þrílembdar

Mesta fjölgunin í Grindavík á sér stað í fjárhúsunum í Vík, vestast í bænum en þar hófst sauðburður í gær. Í fjárhúsunum eru 39 ær og 8 gemlingar. Guðjón Þorláksson á mest af fénu en alls eru það níu aðilar sem eiga fé í fjárhúsunum.
„Þú kemur tíu mínútum of seint væni minn,“ sagði Guðjón þegar Víkurfréttir litu við í fjárhúsunum í Vík í dag. „Hún var tvílembd blessunin,“ sagði Guðjón um leið og hann tók lömbin upp og færði þau nær mömmu sinni. Þau voru hálf völt á fótunum og þeim var kalt, enda ekki nema nokkrar mínútur síðan þau voru í hlýju legi móðurinnar. En lömbin eru ótrúlega fljót að koma sér á lappirnar og sömuleiðis eru þau ekki lengi að finna spena mömmunnar sem reynir að leiðbeina krílunum.
„Já, svona komdu nú,“ sagði Guðjón og hélt á lömbunum inn í hlöðuna þar sem átti að setja þau og mömmuna í stíu. „Það er öruggara að hafa þau hér.“

Hinn kunni grindvíkingur Dagbjartur Einarsson á fimm ær og einn gemling í húsinu. „Maður er ekki í þessu út af hagnaðinum, það er alveg á hreinu,“ sagði Dagbjartur og hló um leið og hann steig inn í stíuna hjá Gránu sem varð þrílembd í morgun – í þriðja sinn. „Já hún er algjör eðalkind – það er hún,“ sagði hann um leið og hann tók lömbin upp. „Tvær stelpur og einn strákur. Það verður örugglega alið undan þér Grána mín,“ sagði Dagbjartur stoltur á svip.
Dagbjartur segist hafa óskaplega gaman af því að standa í þessum smábúskap. „Maður náttúrulega ólst upp með þessu og þessir kallar sem eru með fé hér eru í þessu vegna ánægjunnar. Það er nú ekki svo dýrt lambakjötið maður.“
Það fer vel um féð í Vík og greinilega er vel hugsað um það. Fyrir utan fjárhúsin er lítið gerði þar sem kindurnar sem óbornar eru geta sólað sig. Vinsælasta ærin í fjárhúsunum er Fríða. „Hún er langvinsælust og krakkarnir hreinlega dýrka hana. Þegar þeir koma og heimsækja hana getur hún verið klukkustundunum saman í fanginu á þeim þar sem krakkarnir klappa henni og strjúka,“ sagði Guðjón um leið og hann strauk Fríðu sem leit annars gæfulegum augum á blaðamann.

Myndirnar: Guðjón Þorláksson hefur haldið fé í fjárhúsunum í Vík frá árinu 1980, en faðir hans Þorlákur Gíslason var bóndi í Vík með um 170 ær á tímabili. Hér er Guðjón með lömbin sem komu í heiminn 10 mínútum áður en myndirnar voru teknar.
Dagbjartur heldur á þremur lömbum sem Grána bar í morgun. Þetta er í þriðja sinn sem hún er þrílembd.
Guðjón í gerðinu fyrir utan fjárhúsinu þar sem kindurnar sóla sig. Með honum á myndinni er Fríða, vinsælasta kindin í húsinu. VF-ljósmyndir/Jóhannes Kr. Kristjánsson.

 

 



Bílakjarninn
Bílakjarninn