Sannkallað fjölskyldufyrirtæki
Sigurður Ingvarsson hefur rekið rafverkstæði í Garðinum í næstum 45 ár. Áfanganum nær hann í vor. Þrátt fyrir að vera orðinn 72 ára gamall þá vinnur Sigurður ennþá fullan vinnudag. Breytingin er einnig mikil á þessum árum en fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og þá sérstaklega síðustu tvo áratugina.
Rafverkstæðið byrjaði heima í bílskúr en svo var byggt yfir starfsemina við Heiðartún og svo var sú aðstaða stækkuð enn frekar. Þar var jafnframt rekin verslun með raftæki og íþróttafatnað. Í dag er eingöngu rafverkstæði og skrifstofuhald í Heiðartúninu en verslunin með raftækin og íþrótta- og útivistarfatnaðinn er á Hafnargötu 61 í Keflavík.
Árið 2006 var fyrirtækinu breytt í SI raflagnir ehf. og komu þá dætur og tengdsynir inn í reksturinn og má því segja að SI raflagnir sé sannkallað fjölskyldufyrirtæki.
Verkefnin víða á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu
Fjölskylda Sigurðar starfar öll í fyrirtækinu. Eiginkonan, Kristín Guðmundsdóttir, starfar á skrifstofunni og dæturnar, Guðlaug og Jóna, sjá um verslunarreksturinn í Keflavík. Þá starfa tengdasynirnir hjá fyrirtækinu og barnabörnin eru einnig komin í vinnu. Samtals er Sigurður með 20 rafvirkja í vinnu í dag en þeir voru 35 í góðærinu fyrir hrun.
„Verkefni fyrirtækisin dreifast víða, mikil sé á höfuðborgarsvæðinu og annað hérna á Suðurnesjum. Strákarnir eru allir búsettir annað hvort í Garði eða Reykjanesbæ og því er verulegur akstur, en þannig viljum við hafa það“. Þá eru SI raflagnir einnig eigendur af Bergraf ásamt tveimur öðrum fyrirtækjum, sem eru Nesraf og Rafholt. Bergraf býður í ýmis stærri verkefni þar sem þörf er fyrir fleiri rafvirkja. Sigurður segir það samstarf hafa gengið vel og verkefnin séu víða. Hann hafi tekið þátt í útboðum, bæði á eigin vegum og einnig í nafni Bergraf. Verkefnin eru bæði í nýlögnum og einnig í viðhaldi.
Selt Siemens yfir 30 ár
Sigurður hefur selt Siemens raftæki í 30 ár. Fyrst var hann með þau í verslun í Garðinum en þegar Sigurður heitinn Guðmundsson hætti með Ljósbogann í Keflavík þá óskaði umboðsaðili Siemens á Íslandi eftir því að Sigurður setti upp verslun með Siemens vörur í Keflavík. Hann tók þeirri áskorun og keypti verslunarhúsnæði á horni Hafnargötu og Vatnsnesvegar og setti þar upp myndarlega verslun með raftæki og íþrótta- og útivistarfatnað.
Iðnaðarmenn eru oft ágætur mælikvarði á það hvort atvinnulífið sé á uppleið. Sigurður segist ekki finna fyrir uppsveiflu á Suðurnesjum en hins vegar sé talsvert að lifna yfir höfuðborgarsvæðinu og þar séu mörg verkefni fyrirtækisins um þessar mundir. Sigurður er á því að álverið í Helguvík vanti. Þá muni lifna mjög yfir atvinnulífinu á svæðinu.
Tengigjaldið til góðra mála
Þegar Suður með sjó tók hús á Sigurði var hann í kirkjugarðinum að Útskálum að tengja ljósakrossa. Hann hefur séð um þá þjónustu til margra ára og gjaldið sem hefur verið tekið fyrir þjónustuna hefur verið notað til góðra málefna. Það hafa því allir borgað með bros á vör, enda vitað að peningurinn færi óskiptur í verðugt verkefni sem oftar en ekki hefur snúið að börnum. Nú stendur t.a.m. til að leggja verðugu verkefni á Barnaspítala Hringsins lið.
Varla viðræðuhæfur þegar Liverpool er að spila
Ekki var viðtalið þó tekið í kirkjugarðinum því þar geisaði hálfgerður snjóstormur. Sigurður bauð því blaðamanni heim í kaffi. Í sjónvarpinu var svo leikur í enska boltanum. Liverpool var að taka á móti West Ham United. Sigurður sagðist nú varla vera viðræðuhæfur á meðan Liverpool væri að spila. „Ég þarf oft að segja þeim til og tala alveg helling við sjónvarpið,“ segir hann og brosir. Á meðan viðtalið fór fram skoraði Liverpool tvívegis og var því fagnað. Kristín, eiginkona Sigurðar, sagði bónda sinn þó ótrúlega rólegan að þessu sinni. Það væri eiginlega ekki verandi nálægt honum þegar Liverpool væri að spila.
Fótboltinn er nokkuð ríkur í Sigurði. Hjarta hans hefur slegið hjá Víði í Garði í áratugi. Hann var þjálfari til margra ára og kom mörgum peyjum úr Garðinum til manns á fótboltavellinum. Hann segist hættur að skipta sér af boltanum í dag. Hann mæti þó á leiki, enda barnabörnin farinn að spila fyrir Víði. Hann segir þó landslagið í boltanum vera breytt. Áður fóru allir á fótboltaæfingu eftir skóla. Nú séu það tölvur og önnur afþreying sem eigi hug ungra barna. Gullöldin hjá Víði í Garði sé löngu liðin, en starfið sé gott og vandað í Garðinum. Mikil uppbygging á aðstöðu muni örugglega skila sér.
Eigendur SI raflagna vilja koma á framfæri þökkum til allra viðskiptavina fyrir velvild í garð fyrirtækisins og óska öllum gleðilegrar hátíðar.
(Úr blaðinu SUÐUR MEÐ SJÓ sem fylgdi Víkurfréttum 19. desember sl.)