HSS
HSS

Mannlíf

Sandgerðingar tendruðu jólaljósin í bæjarafmæli
Jólasveinninn mætti á svæðið og gladdi bæði börn og fullorðna.
Þriðjudagur 4. desember 2012 kl. 11:47

Sandgerðingar tendruðu jólaljósin í bæjarafmæli

Jólaljósin á jólatré Sandgerðisbæjar voru kveikt í gær, þann 3. desember. Það er orðinn siður í Sandgerði að kveikja jólaljósin þann 3. desember en það er afmælisdagur Sandgerðisbæjar, sem fagnaði í gær 22 ára afmæli. Það var Óðinn Pétursson frá Hafurbjarnarstöðum við Sandgerði sem kveikti jólaljósin. Hann er nýlega orðinn 6 ára gamall en sá siður hefur skapast að fá sex ára barn sem á afmæli sem næst 3. desember til að kveikja ljósin. Óðinn á afmæli í lok nóvember.

Eftir ávarp Ólafs Þórs Ólafssonar, forseta bæjarstjórnar Sandgerðis, þá söng barnakór Sandgerðis við undirleik Hobbitana. Þá kom jólasveinn í heimsókn og gladdi viðstadda.

Kalt var í veðri í Sandgerði í gær en foreldrafélag Grunnskólans í Sandgerði sá til þess að allir fengju hita í kroppinn með því að bjóða upp á kakó með rjóma og piparkökur.

Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi í Sandgerði síðdegis í gær. Fleiri myndir í Víkurfréttum á fimmtudaginn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fjölmenni var viðstatt þegar kveikt var á jólaljósunum í Sandgerði síðdegis í gær.

Barnakór Sandgerðis og Hobbitarnir sungu og léku jólalög.