HSS
HSS

Mannlíf

Sandersdætur í 95 ára afmæli
Fimmtudagur 20. nóvember 2003 kl. 11:08

Sandersdætur í 95 ára afmæli

Einn af elstu borgurum Ísafjarðar, Herdís Albertsdóttir, átti 95 ára afmæli í gær. Herdís hefur ávallt gefið svokölluðu kynslóðabili langt nef og sannað að aldur er afstætt hugtak. Hún býr ennþá í húsi sínu í Sundstræti þar sem nokkrar kynslóðir dokkupúka hafa notið nærveru hennar og hjálpsemi. Í tilefni dagsins komu nokkrir ættingjar hennar saman á heimili barnabarns hennar Kristjönu Sigurðardóttur.


BB-ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson: Afmælisbarnið ásamt frænkum sínum Jónínu og Margréti Sanders úr Njarðvík.

Fleiri fréttir af bb.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn