Samveran með fjölskyldunni besta jólagjöfin
Árni Björn Erlingsson er Sandgerðingur sem býr núna á Völlunum í Hafnarfirði. Hann ólst upp við rjómalagaða súpu í forrétt á aðfangadag en konan hans möndlugraut. Hann er mjög duglegur í eldhúsinu yfir hátíðirnar - sérstaklega við að narta í afganga og ganga frá eftir matinn.
Fyrstu jólaminningarnar?
Ég man mig bíða spenntan eftir því að mamma og pabbi væru búinn að vaska upp svo við systkynin gætum opnað pakkanna.
Jólahefðir hjá þér?
Eiginkonan ólst upp við möndlugraut í forrétt á aðfangadag en ég rjómalagaða súpu. En þar sem okkur þótti við verða svo södd af möndlugrautnum ákváðum við að hafa hann alltaf í hádeginu á aðfangadag, með tilheyrandi möndlugrautsverðlaunum.
Ertu duglegur í eldhúsinu yfir hátíðirnar?
Já ég held ég geti sagt það, er meira og minna alla hátíðina að narta í afganga, en ef þú meinar eldamennsku, þá er ég betri í að ganga frá eftir matinn.
Jólamyndin?
Cristmas Vacation er myndin sem horft er á nánast hver jól og síðan horfum við líka á Home Alone með litlu prinsessunum.
Jólatónlistin?
Bing Crosby og Frank Zinatra, koma mér yfirleitt í jólaskap.
Hvar kaupirðu jólagjafirnar?
Aliexpress!
Gefurðu mikið af jólagjöfum?
Nei það held ég ekki, þú þyrftir að spyrja konuna, hún er miklu betri í þessu en ég.
Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf?
Kannski ekki alltaf en við stórfjölskyldan höldum alltaf bingó þar sem allir koma með smá pakka með sér, svo er spilað og drukkið súkkulaði og sporðrennt nokkrum smákökum með.
Besta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Ég hef verið heppinn að því leyti að ég hef fengið bestu jólagjöfina á hverjum jólum, sem er að vera með fjölskyldunni og borða góðan mat, spilla börnunum pínu og eiga ljúfar stundir.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Hamborgarhryggur.
Eftirminnilegustu jólin?
Sennilega fyrstu jólin sem við konan mín héldum ein ásamt syninum og þurftum að stíga skrefið; að þurfa að elda sjálf; engar mömmur til að bjarga okkur. Þarna fóru hjálpardekkin af og í ljós koma að við gátum þetta alveg.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Sömu og síðastliðin jól, en ef þú meinar í pakkaformi þá er góð bók eitthvað sem gleður mig alltaf.