Samkaup gefur Virkjun kaffi og vöfflur
Leitin að „Postulunum 12“ stendur nú yfir hjá Virkjun mannauðs, sem staðsett er að Ásbrú. Postularnir styrkja starfsemi Virkjunnar með þeim hætti að leggja til kaffi í einn mánuð og bjóða upp á vöfflur tvisvar í viku þann mánuð sem fyrirtækið sér um kaffið.
Samkaup hf. riðu á vaðið og styrktu Virkjun um kaffi og vöfflur í marsmánuði og hafa skorað á ÍAV-þjónustu að taka að sér að bjóða upp á kaffi og vöfflur í apríl. Það kemur síðan í hlut ÍAV-þjónustu að skora á fyrirtæki í maí og svo koll af kolli.
Til að byrja með ætlar Virkjun að hafa Vöfflukaffið á þriðjudögum klukkan 14:30 og fimmtudögum klukkan 10:30. Allir ávallt velkomnir.
„Verkefnin framundan hjá Virkjun eru bæði margþætt og mörg og nú ríður á að við tökum höndum saman svo Virkjun megi verða sá öflugi vettvangur fyrir atvinnuleitendur sem svo sannarlega er þörf á. Hlutverk Virkjunar er að verða ein allsherjar Virknimiðstöð, auka á virkni atvinnuleitenda og stuðla að því að þeir geti annaðhvort farið af stað sjálfir með atvinnusköpun eða komist í starf þegar tækifæri opnast. Gott er að fylgjast með starfsemi Virkjunar á virkjun.net og einnig erum við á Facebook; Virkjun mannauðs á Reykjanesi. Opið er alla daga vikunnar frá 0900 til 1600,“ segir Gunnar Halldór Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Virkjun.
VFmynd/elg - Gunnar Halldór Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Virkjun, tekur við kaffibirgðunum frá fulltrúa Samkaups.