HSS
HSS

Mannlíf

Föstudagur 5. febrúar 1999 kl. 21:25

SAMFYLKINGIN Á SUÐURNESJUM

Það sannaði sig í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík að flokkakerfið er í uppstokkun. Samfylkingin er komin til að vera. Glæsilegur árangur við skipan á framboðslistann þar veit á gott um framhaldið. Lífsviðhorf félagshyggju og sjónarmið jafnræðis hafa náð saman í einni fylkingu sem er tilbúin til átaka við sjónarmið sérhyggju, þar sem stjórnarstefnan hefur verið í þágu hinna efnameiri í samfélaginu fyrst og fremst. Annað kvöld og á laugardag fer fram prófkjör Samfylkingarinnar hér í Reykjaneskjördæmi. Mikilvægi prófkjörsins felst einnig í þeim sóknarmöguleikum sem okkur gefst í framhaldinu. Við höfum við tækifæri til þess að stilla saman strengi og velja lista yfir flokkslínur eins og okkur sýnist best. Í sameiginlegri samfylkingu til framtíðar er samt mikilvægt að við Suðurnesjamenn höldum góðum hlut í þessu prófkjöri. Það skiptir líka máli að til forystu veljist fólk sem þorir að takast á við valdaöflin í samfélaginu, hafi þor til að stokka upp og standa vörð um velferðarkerfið og sé fært um að fara nýjar leiðir í nýsköpun atvinnulífsins. Ég býð mig fram til þjónustu fyrir fólk og hef engra annarra hagsmuna að gæta. Mér þætti vænt um að fá stuðning í 3. sætið. Skúli Thoroddsen.
Bílakjarninn
Bílakjarninn