Sálin í Stapa annan í jólum
Sálin leikur í Stapanum á annan í jólum, 26. des. Forsala miða verður á staðnum föstudaginn milli kl. 17 og 19.
Sálin sendi nýlega frá sér plötuna Lifandi í Laugardalshöll, sem geymir einmitt mynd- og hljóðupptökur frá tónleikum Sálarinnar og Gospelkórs Reykjavíkur, sem fram fóru í haust. Platan hefur selst í yfir 8.000 eintökum.
Það má einnig geta þess, að Sálin og Goseplkór Reykjavíkur halda síðbúna útgáfutónleika í Laugardalshöllinni 30. desember. Miðasala er í fullum gangi á miða.is
Sveitin tekur sér kærkomið nokkurra vikna frí um áramótin, eftir annasama mánuði.
Mynd frá tónleikum Sálarinnar í Stapa