Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Sálin í Offanum á þriðja í jólum
Fimmtudagur 18. desember 2008 kl. 15:07

Sálin í Offanum á þriðja í jólum

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sálin hans Jóns míns slær upp jólaballi í Officera-klúbbnum í kvöld, laugardagskvöldið 27. desember. Það má segja að hálfgerð hefð sé fyrir því að Sálin leiki á Suðurnesjunum á milli jóla og nýars, en oftast hafa þau gigg verið í Stapanum. En nú þegar það sögufræga hús er í endurbyggingu þá liggur leiðin á "Völlinn", í annað sögufrægt hús. Í sumar tróð Sálin einmitt upp í "Offanum" við góðar undirtektir, enda er sá klúbbur vel til slíkra skemmtana fallinn. Giggið verður tileinkað minningu Rúnars Júlíussonar, en svo vill til að forsöngvari Sálarinnar hlaut eldskírn sína í hljóðveri á Skólaveginum hjá Rúnari haustið 1986, hvar Sniglabandið tók upp sína fyrstu skífu. Sálverjar ætla að heiðra minningu Rúnars með því að flytja nokkur lög sem hann hljóðritaði á sínum ferli. Hin síðari ár er mjög sjaldgæft að Sálverjar flytji tökulög og er meiningin m.a. að flytja lagið Vilji Sveins eftir Rúnar, en það lag flutti Sálin annað slagið á þeim tíma er lagasafn bandsins var ekki orðið jafn stórt og nú er. Þess fyrir utan leika Sálverjar öll sín helstu lög, en þversnið þekktustu laga bandsins frá upphafi kom nýlega út á safnplötunni „Hér er draumurinn“, sem hlotið hefur prýðilegar móttökur.

Ólíklegt er að Sálin troði aftur upp á Suðurnesjum á næstu misserum og því ættu Sálar- og dansþyrstir ekki að láta þetta gigg fram hjá sér fara. Húsið opnar kl. 23.

VF-mynd/hildurbjörk: Sálin hefur gert það gott á böllum á Vallarheiði í haust. Hún verður á ferðinni á þriðja í jólum í Offanum.