Bygg
Bygg

Mannlíf

Sagnakvöld í Saltfisksetrinu
Mánudagur 12. nóvember 2007 kl. 12:34

Sagnakvöld í Saltfisksetrinu

Sagnakvöld verður haldið í Saltfisksetri Íslands í Grindavík í boði Grindavíkurbæjar, Saltfisksetursins og Björgunarsveitarinnar Þorbjörns fimmtudaginn 15. nóvember. Hefst dagskrá kl. 20 og stendur til 22.

Sjóslys og björgun
Gunnar Tómasson fyrrverandi formaður Slysavarnarfélags Íslands og Björgunarsveitarinnar  Þorbjörns  segir sögur og sýnir myndir af sjóslysum og björgun við Grindavík. Engin björgunarsveit á landinu hefur bjargað jafn mörgum sjómannslífum og Björgunarsveitin Þorbjörn sem fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir .

Verslunarsaga Grindavíkur
Erling Einarsson segir sögu verslunar sem er samofin sögu fiskveiða og upphafi þéttbýlismyndunar í Grindavík. Erling sem er innfæddur Grindvíkingur eins og Gunnar er um þessar mundir að gera upp gamalt pakkhús sem kemur við sögu verslunar í Grindavík.

„Hér er minn staður. Hér er mitt fólk. Hingað leitar hugurinn hvert sem ég fer“.
Sigrún Jónsd. Franklín fjallar um menningararf út frá bókinni, Ævidagar Tómasar Þorvaldssonar útgerðarmanns. Sigrún sem staðið hefur fyrir sagnakvöldum og ýmsum menningarviðburðum telur æviminningar Tómasar vera hafsjó fyrir menningarsögu Grindavíkur.

Milli atriða verður flutt ljóðið Tugason tyrrinn og grár eftir Grím Thomsen og fjöldasöngur við undirleik.

Að lokum verður boðið upp á  kaffi og smá meðlæti. Nýútkomin bók, Sagnaslóðir á Reykjanesi I, sem byggir á efni fyrri sagnakvölda verður á sérstöku tilboðsverði þetta kvöld. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

 

www.grindavik.is

 

Mynd/OSA: Úr Þjófagjá á Þorbirni, Grindavík í baksýn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn