Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Sagnakvöld í Bíósal Duushúsa í kvöld
Miðvikudagur 15. nóvember 2006 kl. 02:04

Sagnakvöld í Bíósal Duushúsa í kvöld

Miðvikudaginn 15. nóvember kl. 20:00 – 22:00 ætla leiðsögumennirnir Sigrún Franklín, Rannveig Lilja Garðarsdóttir og Hildur Harðardóttir að bjóða íbúum og öðru áhugasömu fólki upp á sagnakvöld í Duushúsum í samvinnu við Byggðasafn Reykjanesbæjar.

Saga svæðisins er  mjög áhugaverð. Leiðsögumenn Reykjaness kynntu sér söguna og fylltust miklum áhuga vegna þess hversu athyglisverð hún er og vilja miðla hluta hennar áfram til íbúa og annarra gesta.

„Af stað á Reykjanesið“ heitir erindi Sigrúnar en hún mun sýna myndir og segja frá fornum þjóðleiðum til og frá Grófinni í Keflavík sem víða má enn sjá markaðar í landslagið og hugmyndir eru um að gera að vinsælum útivistarleiðum.

„Saga Duusveldisins“ Rannveig Lilja segir sögu Duus fjölskyldunnar og Duus húsanna frá upphafi til dagsins í dag. Húsin geyma mikla sögu um verslun og viðskipti sem hóst seint á nítjándu öld og stóð fram í byrjun tuttugustu aldar og lengur.

Hildur Harðardóttir hefur tekið saman sagnir og þjóðsögur af svæðinu og gefið út í bókinni „Sagnir úr Reykjanesbæ“. Hún mun velja góðar sögur til að segja áheyrendum.

Milli atriða verður fjöldasöngur við undirleik Geirþrúðar Bogadóttur, ljóð Jónasar Hallgrímssonar, í tilefni af „Degi  íslenskrar tungu“

Heitt verður á könnunni   Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Myndin sýnir Stapadrauginn fræga sem birtist á gamla Keflavíkurveginum við Stapa.

 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024