Bygg
Bygg

Mannlíf

Sagði frá 10 helstu mistökum frumkvöðla
Miðvikudagur 6. febrúar 2013 kl. 09:05

Sagði frá 10 helstu mistökum frumkvöðla

Haukur Guðjónsson stofnandi Búngaló og ritstjóri vefsíðunnar frumkvodlar.is sagði frá 10 helstu mistökum frumkvöðla á hádegisfyrirlestri í Eldey í gær en slíkir fyrirlestar eru í boði fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki annan hvern þriðjudag.

Ferðalag frumkvöðulsins er bæði langt og erfitt. Í því þarf frumkvöðullinn að takast á við verkefni sem hann hefur aldrei fengist við áður og sigrast á áskorunum sem virðast stundum vera ósigranlegar.

Haukur tók fyrir algengustu mistökin sem íslenskir einstaklingar lenda í þegar þeir taka sín fyrstu skref í þessu áhugaverða ferðalagi.

Það er óhætt að segja að gestir hafi kannast við flest mistökin og nýttu margir sér tækifærið og leituðu ráða hjá Hauki eftir fyrirlesturinn.


Bílakjarninn
Bílakjarninn

Haukur Guðjónsson stofnandi Búngaló og ritstjóri vefsíðunnar frumkvodlar.is