Saga sjávarútvegs í Duushúsum
Miðvikudaginn 19. nóvember kl. 20.30 stendur Byggðasafn Reykjanesbæjar fyrir fræðslufundi í Duushúsum, Duusgötu 2, Reykjanesbæ. Gestur kvöldsins er Jón Þ. Þór sagnfræðingur og mun hann kynna rannsóknir sínar á byggðasögu og sögu sjávarútvegs. Eftir Jón liggur fjöldi ritverka, skemmst er að minnast útgáfu byggðasögu Hafnahrepps, "Hafnir á Reykjanesi", sem út kom s.l. vor, en áður hafði hann t.d. samið sögu Grindavíkur. Saga sjávarútvegs hefur verið honum hugstæð og er nú um þessar mundir að koma út annað bindið í ritverki hans um sögu sjávarútvegs, Uppgangur og barningur. Penninn – Bókabúð Keflavíkur verður með bækur Jóns á tilboðsverði á staðnum, heitt kaffi á könnunni. Allir velkomnir.