Saga Eurovision flutt í Andrews
Saga Eurovisionkeppninnar spannar nær 6 áratugi og skipta lögin þúsundum. Við Íslendingar tókum ástfóstri við keppnina löngu áður en Gleðibankinn varð okkar fyrsta framlag, 30 árum eftir að keppnin hófst. Síðasta vetrardag eða næsta miðvikudagskvöld verður Saga Eurovision flutt í Andrews-leikhúsinu.
Í þessari glæsilegu tónleikasýningu verður saga Eurovisionkeppninnar rakin í tali og tónum, allt frá árinu 1956 til dagsins í dag og víst er að hér er sannarlega á ferðinni skemmtun fyrir alla fjölskylduna, því ALLIR eiga sín uppáhaldslög úr keppninni. Öll eigum við skemmtilegar minningar tengdar Eurovision og munu þær eflaust koma upp í hugann þetta kvöld, þegar helstu perlur keppninnar verða fluttar af þeim Friðriki Ómari, Selmu Björnsdóttur og Regínu Ósk ásamt Eurobandinu. Þetta er viðburður sem aðdáendur Eurovision, á öllum aldri, mega ekki missa af.
Söngvarinn Friðrik Ómar er í framvarðasveit sýningarinnar. Hann segir það spennandi að koma til Suðurnesja. Andrews leikhúsið hafi allt til alls og sé frábært tónleikahús.
- Segðu mér aðeins frá hugmyndinni á bak við „Sögu Eurovision“ og þessari uppfærslu ykkar?
„Eurobandið hefur verið starfandi í 7 ár núna í mars og það var alltaf á planinu að búa til tónleika með lögum úr Eurovision. Við höfum einungis spilað á böllum til þessa. Þar þýðir víst lítið að leika allar flottu ballöðurnar úr keppninni. Á böllunum spilum við bara stuðlögin en við erum með 60 laga stuðprógramm. Nú bætast við allar flottu ballöðurnar fyrir tónleikana svo það mætti ætla að hljómsveitin kunni nú um 100 Eurovision-lög utan að. Saga keppninnar spannar nær 60 ár og lögin skipta þúsundum svo af nógu er að taka. Það er hreint með ólíkindum hvað það er mikið af flottum lögum úr keppninni“.
- Hvað réð tónlistarvalinu og hvaða lög eru þetta?
„Þetta eru fyrst og fremst lög sem við teljum að Íslendingar vilji heyra á tónleikum. Við ætlum að skemmta fólki. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Við eigum líka nokkur uppáhalds lög sem við tökum aukalega. Þetta er svona hæfileg blanda af lögum sem urðu vinsæl á Íslandi og síðan lögum sem skipa stóran sess í sögu keppninnar.
- Hvernig byggið þið upp sýninguna? Eruð þið að syngja þetta saman eða hvert í sínu lagi?
„Við erum á sviðinu allan tímann því við röddum fyrir hvort annað líka. Þetta er mjög heimilisleg stemmning hjá okkur. Við erum öll góðir vinir og tökum þetta á gleðinni og húmornum alla leið. En við vöndum okkur samt við flutninginn. Leggjum mikinn metnað í að hafa þetta í lagi“.
- Hvað veldur því að þið ákveðið að koma til Suðurnesja með sýninguna á síðasta vetrardegi?
„Okkur langaði til að gefa fólki í nágrenni Reykjavíkur kost á að koma án þess að þurfa endilega að koma í Hörpu. Það eru fleiri æðisleg hús hérna á svæðinu eins og Andrews Theatre. Það hefur allt til alls. Dagsetningin er skemmtileg. Við kveðjum veturinn með glamúr og glæsileika. Þetta verður rosalega skemmtilegt. Ég lofa því að gestirnir fara brosandi út og tilbúnir í sumarið“.
Miðasala fer fram á midi.is en einnig má kaupa miða við innganginn og í síma 540-9800.
Börn yngri en 12 ára fá miðann á 2000. Einungis er hægt að bóka barnamiða í síma 540-9800.