HSS
HSS

Mannlíf

Safnahelgi á Suðurnesjum um helgina
Laugardagur 24. mars 2012 kl. 12:42

Safnahelgi á Suðurnesjum um helgina

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í fjórða sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 24. – 25. mars n.k. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis.  Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin og þá dagskrá sem er í boði.

Fulltrúar allra sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Menningarráði Suðurnesja auk framlags sveitarfélaganna sjálfra.

Dagskrá safnahelgarinnar fylgir hér með. Í henni kennir ýmissa grasa. Tónleikar, sýningar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur. Myndlist, saga, norræn goðafræði, víkingar, bátasmíði, rokk og ról auk þess sem haldin verður uppskriftarkeppni á saltfiskréttum. Skessan í hellinum, Heimskautin heilla og Sköpun alheimsins svo fátt eitt sé nefnt. Í boði er sem sagt mjög fjölbreytt menningardagskrá og ókeypis afþreying fyrir alla fjölskylduna.


Dagskrá


Garður

Byggðasafnið á Garðskaga, opið laugardag og sunnudag kl. 13.00-17.00.
Upplýsingar um leitina að flakinu af Goðafossi sem skotinn var niður 10. nóvember 1944 í Garðsjó liggja frammi á safninu. Komið verður fyrir korti af leitarsvæðinu ásamt myndum og upplýsingum frá leiðangri leitarmanna.

Laugardagur kl. 14.30, fyrirlestur, Haukur Aðalsteinsson segir frá tvíæringum sem gerðir voru út í lok 18. aldar við sunnanverðan Faxaflóa. Bátur sömu gerðar og þessir tvíæringar voru, verður til sýnis á staðnum.  Bátinn Smíðaði Haukur Aðalsteinsson skipasmiður 

Sunnudagur kl. 14.30, fyrirlestur, Haukur Aðalsteinsson segir frá landhelgisbátnum Ágústi sem gerður var út til gæslu í Garðsjó árið 1913.



Grindavík

Kvikan, Hafnargata 12a, opið laugardag og sunnudag kl. 11:00 – 17:00.  Saltfisksýning, Jarðorkusýning,  Kaffihús. Myndband frá leikskólanum Laut sýnt af og til alla helgina. Ljósmyndasýningin - Góðan daginn, Grindvíkingur! Flestar myndirnar eru teknar í grindvískri náttúru síðustu árin. Haraldur H. Hjálmarsson, Eyjólfur Vilbergsson, Arnfinnur Antonsson og Valgerður Valmundsdóttir.     

Laugardagur kl. 11.30 Frumsýnt myndband sem börn af leikskólanum Króki hafa unnið í samstarfi við foreldra og aðstandendur barnanna . Unnið var með lagið Suðurnesjamenn eftir Kaldalóns, sungið og leikið með leikmunum sem börnin sköpuðu sjálf. Myndbandið verður  sýnt af og til um helgina.

Laugardagur kl. 14:00 Barnadagskrá. Pollapönk, GRAL-Horn á höfði, Rapparinn Ari Auðunn, Strákabandið Pabbastrákar.

Laugardagur kl. 16:00 Sagnastund - Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi. Brynjúlfur Jónsson safnaði gömlum sögnum á Suðurnesjum og rannsakaði sögustaði og minjar í Grindavík er hann var þar á vertíð seint á 19. öld. Guðlaug Guðmundsdóttir segir sögur af forföður sínum og Sigrún Jónsd.Franklín kynnir sagnir og minjar sem hann skráði og tengjast Grindavík.

Laugardagur kl. 20:00 Grindvísku hljómsveitirnar Jón, Páll og pollarnir og Lógos skemmta. Aðgangur ókeypis. Veitingasala.  Hljómsveitina Lógos skipa: Kristjón Grétarsson, Jóhann Grétarsson, Gunnar Böðvarsson, Margrét Einarsdóttir, Sigurbjörg Hilmarsdóttir, Sirrý Erlingsdóttir, Jóna Rúna Erlingsdóttir, Svanhvít Daðey Pálsdóttir, Eva Björg Sigurðardóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Hljómsveitina Jón, Páll og pollarnir skipa: Jón Örn Sigurðsson, Páll Jóhannesson, Viktor Gunnarsson, Rúnar Gunnarsson og Ástþór Sindri Baldursson.


Northern Light Inn, opið laugardag og sunnudag kl. 10:00 – 22:00.
Málverkasýning Tolla og ljósmyndasýning þar sem myndir birtast á stóru tjaldi.  Myndefnið er Ísland og eru teknar af ljósmyndaranum Brooks Walker.

Bryggjan, opið laugardag og sunnudag kl. 11:00 – 23:00. Útgerðar- og sjómannasýning með munum og myndum.
Laugardagur kl. 21:30.  Feðginin Sigurbjörn Dagbjartsson og Arney Sigurbjörnsdóttir skemmta og stjórna fjöldasöng / „Bryggjusöng“.
Sunnudagur kl. 20:30. Gunnar Þórðarson, hinn eini sanni, með tveggja tíma tónleika.

Verslunarmiðstöðin 2. hæð, opið laugardag og sunnudag kl. 13:00 – 16:00. Málverkasýning Pálmars Guðmundsson kennara og frístundamálara.

Bókasafn Grindavíkur, opið laugardag og sunnudag kl. 13:00 – 16:00. Brúðusýning Rúnu Gísladóttur myndlistarmanns og fyrrverandi kennara.  Kynning á Ljósmyndasafni Grindavíkur – hægt að sitja við tölvu, skoða myndir og senda inn upplýsingar um þær.

Listastofa Helgu,Vörðusundi 1,opið laugardag og sunnudag kl. 13:00 – 18:00. Opin vinnustofa, allir velkomnir, léttar veitingar og notaleg stemming.

Sjómannastofan Vör, opið laugardag kl. 10:00 – 15:00. Menning í dúr eða moll. Ljósmyndasýning Kristins Benediktssonar.

Aðalbraut, opið laugardag og sunnudag kl. 10:00 – 22:00: Vettlingasýning - Sýndur verður fjöldinn allur af heimaprjónuðum og hekluðum vettlingum frá grindvískum prjónakonum.

Handverksfélagið Greip, Skólabraut 8, opið hús laugardag og sunnudag kl. 10:00 – 16:00.

Minja- og myndasýning Þorbjarnar hf. Í gömlu fiskmóttökulúgunum við gamla salthúsið,
sem nú hýsir Veiðafæraþjónustuna ehf. við Ægisgötu (Garðvegs megin) eru átta gluggar
og einn gluggi að Hafnargötu 12, þar sem skrifstofa fyrirtækisins er. Í þessum gluggum
er sýning á gömlum munum og myndum, sem safnast hafa upp hjá fyrirtækinu í gegnum
árin bæði tengdum fiskveiðum og fiskvinnslu. Á flettiskjám eru sýndar gamlar myndir frá
starfsemi fyrirtækisins.

Lífið er saltfiskur, saltfiskhelgi MSM og Grindavíkurbæjar, saltfiskuppskriftarkeppni, saltfiskveisla, saltfisksýning.
Félagið Matur-saga-menning (MSM) og Grindavíkurbær standa fyrir uppskriftakeppni um besta saltfiskréttinn 2012. Matreiðslumennirnir Sigurvin Gunnarsson og Friðrik V. Karlsson meðlimir í MSM velja fimm uppskriftir. Hægt er að senda uppskriftir í tölvupósti til [email protected] í síðasta lagi 23.mars.
Vinningsuppskriftir verða valdar í lok Menningarviku Grindavíkur 17. - 25. mars, sjá nánar um fjölbreytta dagskrá á www.grindavik.is
1. verðlaun eru kr. 30.000,  2. verðlaun kr. 20.000, 3. verðlaun kr.
10.000, 4. verðlaun kr. 5.000 og 5. verðlaun kr. 5.000.
Vinningsuppskriftir verða sýnilegar á vefsíðum www.matarsetur.is og www.grindavik.is. Í Menningarviku mun Salthúsið í Grindavík bjóða upp á saltfiskrétti sjá www.salthusid.is



Reykjanesbær

Víkingaheimar, Víkingabraut 1, opið laugardag og sunnudag kl. 12.00-17.00.  
Margar sýningar í gangi, nýjar og endurnýjaðar og fleiri í undirbúningi.
°Víkingaskipið Íslendingur sem sigldi til Ameríku árið 2000 og ýmsir gripir tengdir siglingunni.
°Víkingar Norður Atlantshafsins, sýning um siglingar og landnám norrænna manna sem unnin var í samstarfi við Smithsonian stofnunina í Bandaríkjunum.
°Landnám á Íslandi, merkar fornleifar af Suðurnesjum.  Á sýningunni má m.a.sjá gripi úr Hafurbjarnarkumlinu og nýjustu fornleifarannsókninni í Vogi Höfnum.
°Örlög goðanna, sýning um norræna goðafræði. Heimsmynd víkinganna er þarna sett fram á listilegan máta þar sem frásögn, myndlist og tónlist fléttast saman á nýstárlegan hátt.  Í sýningunni eru raktar ýmsar þekktustu sögur af norrænu goðunum með aðstoð einstakra leikmynda eftir listakonuna Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, tónlist eftir Hilmar Örn allsherjargoða ásamt hljóðleiðsögn sem Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur hefur tekið saman og er lesinn upp af völdum hópi. Víkingar og fleiri góðir gestir koma í heimsókn. Börnin geta klæðst víkingabúningum.

Listasafn / Duushús, Duusgata 2-8, opið laugardag og sunnudag 13.00-17.00
Sýningin Tilvist.  Listamaðurinn Jón Axel sýnir ný málverk og vatnslitamyndir.
Laugardagur kl. 16.00 formleg opnun á sýningunni, allir velkomnir. Í Bíósal Duushúsa er sýning á nýjum verkum úr safneign Listasafnsins.
Sjá reykjanesbaer.is/listasafn


Bátasafn / Duushús, Duusgata 2-8, opið laugardag og sunnudag 13.00-17.00
Bein útsending á risatjaldi af súluvarpinu í Eldey alla helgina. Rúmlega 100 bátalíkön og munir tengdir sjávarútvegssögu Íslendinga.
Sunnudagur kl. 14.00 fyrirlestur og myndasýning, Magnús Þór Hafsteinsson, höfundur bókarinnar Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í N-Íshafi 1940-43, fjallar um efni bókarinnar og sýnir einstæðar kvikmyndir af Íshafsskipalestunum sem fóru til og frá Íslandi.


Byggðasafn / Duushús, Duusgata 2-8, opið laugardag og sunnudag 13.00-17.00
Sýningin Völlurinn, nágranni innan girðingar. Áhugaverð sýning um sögu Keflavíkurflugvallar þar sem áhersla er lögð á störf  Íslendinga hjá varnarliðinu. Sýningin stendur út apríl mánuð en þá verður hún tekin niður.
Sunnudagur kl. 15.00 Fyrirlestur: Sigrún Ásta Jónsdóttir segir frá gerð sýningarinnar og varðveislu minja er tengjast herstöðinni. Brynja Aðalbergsdóttir kynnir niðurstöður MA ritgerðar sinnar um áhrif herstöðvarinnar á daglegt líf í Keflavík, ritgerðin nefnist: “Viltu biðja jólasveininn að gefa mér íslenskt nammi í skóinn”.


Bókasafn Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57
Laugardagur: 10.00-16.00. Fermingarminningar. Starfsfólk bókasafnsins rifjar upp fermingardaginn sinn í munum og myndum.


Orkuverið jörð, Reykjanesvirkjun, opið sunnudag kl. 12.30-15.30.  
Sýningin rekur sögu orkunnar frá Miklahvelli að virkjun jarðhita á Íslandi. Sjá powerplantearth.is.


Listasafn Erlings Jónssonar, Grófinni 8 opið laugardag og sunudag kl 14.00-17.00
Skúlptúrar  og andlitsmyndir eftir Erling. Sögusýning Iðnaðarmannafélags Suðurnesja er einnig opin í sama húsnæði.

Skessan í hellinum. Svarti hellir við smábátahöfnina í Gróf, opið laugardag og sunnudag kl. 10:00 – 17:00. Skessa Herdísar Egilsdóttur er flutt til Reykjanesbæjar og býður gestum og gangandi að heimsækja sig í hellinn. Sjá skessan.is.

Rokkheimur Rúnars Júlíussonar, Skólavegi 12, opið laugardag og sunnudag 14:00 – 17:00. Sjá runarjul.is.

Iceglass, Grófinni 2, opið laugardag og sunnudag 11:00 – 18:00. Lifandi glerblástur – vinnustofa – gallerí. Sjá iceglass.is.

Jöklaljós, Grófinni 2, opið laugardag 13:00 – 17:00. Ævintýraland kertanna. Gallerí – vinnustofa. Sjá joklaljos.is.

Gallerí Svarta pakkhús,  Hafnargötu 2, opið laugardag og sunnudag 13:00 – 17:00. Gler, leir, prjón, fatnaður, skrautmunir, skartgripir o.fl.
Nýir listamenn taka þátt í starfinu í pakkhúsið og einnig er búið að endurbæta aðstöðu gallerýsins.

Raven Design, Fjósið í Koti, Sjávargötu 28, opið laugardag og sunnudag 13:00 – 17:00. Hugmyndir – hönnun – handverk. Sjá ravendesign.is.

Fjóla gullsmiður, Hafnargötu 21, opið laugardag kl.10:00 – 16:00. Handunnið skart. Sjá skart.is

Gallerí 8, Hafnargötu 26,  opið laugardag kl 11:00 – 16:00. Íslensk hönnun, fatnaður, leðurvörur, skart, myndlist, gler o.fl.

Vatnsnes (gamla byggðasafnið), Vatnsnesvegi 8, opið laugardag og sunnudag 13:00-17:00. List- og handverksfólk býður gesti velkomna á vinnustofur. Margt áhugavert til sölu og sýnis.



Sandgerði

Fræðasetrið í Sandgerði, Vitatorgi, opið laugardag og sunnudag kl. 13.00-17.00.  

Sýningin Heimskautin heilla, Vitatorgi, opið laugardag og sunnudag kl. 13.öö-17.00.

Listatorg, Gallerý / Handverkshús, Garðvegi 1, opið laugardag og sunnudag kl. 13.00-17.00. Margs konar list- og handverk til sölu.

Bókasafn Sandgerðis , Suðurgötu, opið laugardag og sunnudag kl. 13.00-17.00.  Upplestur skólabarna á laugardag.



Vogar

Álftagerði, laugardag kl. 14:00 , kynning á fromleifaskráningu. Kristborg Þórsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands, kynnir nýútkomna skýrslu um fornleifar í Vogum. Skýrslan er sú fyrsta af þremur sem út munu koma um fornleifar á svæðinu á næstu árum. Kristborg mun segja frá skráningarstarfinu og sýna myndir af áhugaverðum fornleifum.

Bókasafn Lestrarfélagsins Baldurs, Stóru Vogaskóla, laugardag opið  kl. 13.00 - 16.00. Verið velkomin.