Safn til minningar um Rúnar Júlíusson
Upptökuheimilið Geimsteinn, eins og Rúnar Júlíusson kallaði það, hefur undanfarin ár verið opið almenningi á Ljósanótt. Gestir og gangandi gátu þá heilsað upp á Rúnar og skoðað hljóðverið hjá elstu hljómplötuútgáfunni á Íslandi. Rúnar hafði um nokkurt skeið velt þeirri hugmynd fyrir sér að opna safn eða gestamóttöku í Geimsteini á svipuðum nótum.
Aðstandendur Rúnars hafa haldið áfram að vinna að þessari hugmynd og á komandi Ljósanótt verður opnað safn til minningar um þennan ástsæla son Keflavíkur. Hefur safnið fengið nafnið Rokkheimur Rúnars Júlíussonar. Það er til húsa í nýrri viðbyggingu að Skólavegi 12 þar sem Rúnar bjó sitt heimili. Þar verður Rúnars minnst í myndum, munum og músík og er af mörgu að taka frá löngum, farsælum og fjölbreyttum ferli eins helsta listamanns bæjarins. Formleg opnun er kl. 17 - 20 föstudaginn 4. september og um helgina verður opið frá 14:00 – 18:00, bæði laugardag og sunnudag.
---
VFmynd/elg - Rúnar Júlíusson að skoða plötusafnið í Geimsteini með meistaraverkið Lifun í höndunum Myndin er tekið haustið 2007 þegar hann var að undirbúa eftirminnilega stórtónleika í Laugardalshöllinni.