Sælla er að gefa en þiggja
Eftirminnilegasta jólagjöf sem Hjörvar hefur fengið var flugmiði til London til að fara á tónleika með uppáhaldsrapparanum sínum. Hann segist vera algjört jólabarn og þykir það skemmtilegasta við jólin vera að verja tíma með fjölskyldunni og að gefa gjafir.
Hvað stendur upp úr hjá þér árið 2022?
Það sem stendur upp úr hjá mér er þegar við strákarnir fórum á Gothia Cup í Svíþjóð það var geggjað, ógeðslega heitt en geggjað fótboltaveður. Við fórum að versla og alltaf jafn gaman uppi á hóteli þar sem ég var með Danna og Hirti í herbergi og þeir eru algjörir sprellarar.
Ert þú mikið jólabarn?
Ég er algjört jólabarn, ég elska jólin og það er svo gaman að gefa gjafir, opna gjafir og borða geggjaðan mat. Svo auðvitað jólatónlistin og besta er að fá að vera með fjölskyldunni.
Hvað er það skemmtilegasta við jólin að þínu mati?
Það skemmtilegasta er að vera með fjölskyldunni og þegar maður gefur pakka og viðkomandi verður ánægður með hann.
Átt þú einhverjar skemmtilegar jólaminningar?
Þegar Jenný systir mín gaf mér ferð til London á tónleika hjá uppáhaldsrapparanum mínum þá sem var Lil Mosey.
En skemmtilegar jólahefðir?
Ég held það sé bara möndlugrauturinn, hann klikkar ekki mamma gerir besta mjólkurgrautinn.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?
Ferðin frá systur minni til London, hún var geggjuð -tónleikar, McDonalds, versla og allur pakkinn.
Hvað er á óskalistanum þínum fyrir jólin í ár?
Rakspíri, föt, nýir skór, eyrnalokkar, hátalari til þess að fara með í keppnisferðir og tennis bracelet.
Hvað er í matinn hjá þinni fjölskyldu á aðfangadag?
Hamborgarhryggur og hnetusteik með allskonar meðlæti.
Hvað ætlar þú að gera í kringum jólahátíðina í ár?
Ég ætla fyrst og fremst að hafa gaman, hitta vini og fjölskyldu, spila með fjöllunni og taka auka æfingar í fótboltanum auðvitað.