Ruslatunnur fyrir hundaúrgang settar upp
Settar hafa verið upp sérútbúnar ruslatunnur fyrir hundaúrgang í bænum. Á íbúafundi bæjarstjórans í maí var nokkuð rætt um lélegan aðbúnað á göngustígum bæjarins. Þá var sérstaklega tíðrætt að ekki skildu vera ruslatunnur á hinu svo kallaða Rómantískasvæði. Hundaeigendur kvörtuðu undan því að þurfa að rölta um með tauminn í annarri og úrganginn í hinni.
Nú hefur aldeilis verið bætt úr þessu og það sem meira er þar er hægt að nálgast sérstaka bréfpoka fyrir hundaúrganginn á sama stað. Það er því hægt að njóta gönguferðarinnar með besta vin mannsins án þess að hafa illalyktandi farangur með í för.