Fimmtudagur 12. mars 2015 kl. 09:19
Rúnar Þór þjófstartar Menningarvikunni í Grindavík
Rúnar Þór Pétursson tónlistarmaður þjófstartar Menningarvikunni í Grindavík og verður með tónleika á Bryggjunni í kvöld, fimmtudaginn 12. mars. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00, það er ókeypis inn og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.