Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Föstudagur 17. janúar 2003 kl. 13:26

Rúnar Júlíusson í Eurovision

Sjónvarpið tekur nú þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í sextánda sinn. Að þessu sinni var ákveðið að halda veglega forkeppni og valdi dómnefnd 15 lög úr þeim 204 lögum sem bárust í keppnina. Meðal flytjenda er Rúnar Júlíusson úr Keflavík með Ást á skítugum skónum.Lögin verða frumflutt í kynningarþáttum í Sjónvarpinu sem verða sýndir vikuna 3. – 7. febrúar, en þá verða flutt 3 lög á dag, að loknu Kastljósi. Á undan hverju lagi verður sýnd stutt svipmynd af höfundi þess, en nöfn höfunda verða ekki kynnt fyrr en þá. Lögin verða síðan endursýnd í vikunni á eftir og einnig flutt á Rás 2 eftir frumflutning í Sjónvarpinu.
Úrslitin verða í beinni útsendingu þann 15. febrúar úr Háskólabíói og hefst útsendingin kl. 21:00. Keppnin verður einnig send út á Rás 2.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024