Rúnar Júlíusson gefur út Söngva um lífið
Söngvar um lífið er heiti nýrrar safnútgáfu sem Rúnar Júlíusson hefur gefið út. Þar syngur hann yfir 70 lög á þremur diskum í glæsilegum pakka sem fylgt er úr hlaði með bæklingi sem Jónatan Garðarson hefur skrifað.
Lögin spanna 45 ára feril Rúnars og voru tekin upp á árunum 1965 (þegar hann söng Fyrsta kossinn inn á plötu með Hljómum) til 2008. Lögin á hljómdiskunum syngur Rúnar ýmist sem sóló-listamaður eða með þeim aðilum sem hann hefur starfað með í gegnum árin, s.s. Hljómum, Lónlí Blú Boys, Bubba Morthens, Unun, Baggalút og fleirum.
Flest voru lögin tekin upp á Upptökuheimili Geimsteins í Reykjanesbæ, nema elstu verkin sem sum voru tekin upp erlendis eða í Reykjavík. Hópur valinkunnra hljóðfæraleikara, tónskálda og textahöfunda kemur við sögu á plötunum í þessum pakka, enda eru mörg laganna orðin sígild.
Rúnar er í ár handhafi heiðursverðlauna íslensku tónlistarverðlaunanna og er safnið gefið út af því tilefni.
Hljómdiskasafnið er endurhljóðblandað og gefið út af Geimsteini í Reykjanesbæ.